Ríkisbandið......Nýr raunveruleikaþáttur

Bráðum mun hefjast á einni af sjóvarpsstöðum landsins þátturinn Ríkisbandið.

Keppendur þurfa alls ekkert að kunna á hljóðfæri eða geta sungið þó að vissulega sé það ekki verra.

Frekar verður leitað efir því að menn hafi einhver lýti eða skrítna rödd og/eða séu á einhvern hátt auðveldir fyrir skemmtikrafta að gera grín að.

En sjálft prófið til að komast í bandið er þræl erfitt, kafað verður æsku þeirra og athugað vel hvort að menn séu ekki af góðum ættum.Einnig er mjög gott að vera svolítið raunveruleika fyrtur og hafa bruðlað svolítið með ríkis fé.

Menn mega síðan alls ekki vita hvað mjólkur lítrinn kostar og hversu erfitt er að fá læknis hjálp og þess háttar.

Verðlaunin eru ekki að verri endanum ágætis laun ,bíll með bílstjóra og bólstrað sæti til að sitja í.Einnig skal það tekið fram að þegar að nýju verður valið í bandið fá eldri meðlimir sérstök fríðindardjobb á erlendri grundu.

Þvílíkt BullAngry

En auðvitað ætti prófið að vera einhvern vegin svona.

1.Hvað kostar mjólkur lítrinn2.Hvað kostar að verða veikur á Íslandi3.Hvað kostar bensín lítrinn.4.Lofar þú að bæta lífskjör Íslendinga.5.Lofar þú að lækka skatta og hækka laun saxófónleikara.


Ha ha ha ha ha ha ha ha ha

Smile Já það er ekki annað en hægt að hlæja af þessu ....ég þori að veðja að hvergi á landinu er talað eins mikið í síma í akstri og í höfuðborginni(já já reiknið með hausatölu og allt það)Einnig má minnast á að hvergi annarsstaðar á landinu aka menn jafnvel með 2005 miða á bílnum án þess að verða stöðvaðir af lögreglu.....Lögreglan hefur hvorki tíma né mannskap til að eltast við þessa hluti..........Smile Minni á könnunina hér til hliðar.......ekki veitir af að vera tilbúinn með nýjan Borgarstjóra.......Heiða er að vinna.....
mbl.is Ökumenn að tala í símann undir smásjánni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þær voru flottastar.

og Amy Winehouse átti skilið að fá þessi verðlaun......en ég get líka skilið afhverju hún fékk ekki að fara til USA.......



Hef verið á þeytingi að undanförnu en er á lífi og við hestaheilsu..........Smile

Virkjum vindinn...Vindmillur í alla garða

Allir að fá sér Vindmillur í garðinn og geymir............þá getum við sent Orkuveitu, Rarik og öðrum langt nef,,,,,,,Smile
Auk þess gæti þetta nú bara verið skemmtilegt......allir með sýnar útgáfur af vindmillum...jafnvel gætu fótboltaáhugamenn verið með þær í liðs litunum......Annars fór rafmagnið af hér í 50 mínútur í kvöld og það er kannski ástæðan fyrir því að ég fór að spá í þétta.........Tjöruborg á morgun ...eins og Steingrímur kallar Reykjavík.Smile
 
 
En 137 metrar á sekúndu váááááá......þetta er Concorde vindhviða. 

mbl.is Mesta hviða 137 m/s
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göng kafli 7854......eða þannig

Þar sem að ég hef áður nöldrað um samgöngur hér á blogginuDevil og gert margan sunnlendinginn brjálaðanWhistling með því, þá er hér svona myndræn lýsing á því hvað ég er að meina.......það virðist nefnilega vera að sumir séu ekki alveg að skilja orðið ófærð og það að komast ekki á milli staða.......og þess vegna vanta okkur göng.......ekki neina Sundabraut eða rándýrar vegbætur sem flýta för manna um 15-20 mínútur í vinnu......heldur göng......til þess að komast á milli staða....náið þið þessu.Smile Þessi mynd er tekin á Fjarðarheiði og sýnir vel hvernig vegurinn er þegar að vegagerðin auglýsir hana færaGrin

PS.Ef þið nöldrið fallega á móti þá lofa ég að þetta er  síðasta gangnanöldrið.......(í einhvern tíma)DSC00147


Helgin framundan.......Von ...Bó...Sigga og Kó.

DSC00143Á að vera dómari ásamt Páli Óskari á Barkanum a Föstudagskvöldið en Barkinn er söngvakeppni þeirra í Menntaskólanum á Egilsstöðum.

Laugardagskvöldið er svo ansi stórt en þá verð ég víst að spila í Kaplakrika(ekki fótbolta samt)Menningarráð Austurlands úthlutaði styrkjum í sínum í gær á Vopnafirði og er ég nokkuð ánægður með minn hlut ......ég hefði samt alveg mátt fá meira.

En alltaf gaman að koma til Vopnafjarðar.Smile,

Hér er samt mynd frá ferðinni á Vopnafjörð í gær.Picture 1


Uppgötvaði þessa á Stevie Wonder plötu

Alveg hreint frábær söngkona, spilar sjálf á gítar og oft með beitta texta, ég heyrði í henni fyrst á síðustu plötu Stevie Wonder sem heitir a time to love.....frábær plata ...svo frábær að úlpupoppsblaða og útvarpssnúðar landsins vissu ekki af henni.En India Arie er flott....Ég fer í fábært skap við að hlusta á þetta lag.

Tannréttingar ...hlutur Tryggingarstofnunar eins í 6 ár.???????????

ó já fórum með prinsessuna í viðtal hjá Tannréttingarsérfræðingi í dag þar sem farið var með okkur yfir hvað bíður okkar næstu ár.

Faglegi þátturinn á þessu viðtali var mjög góður og gagnlegur en þegar umræðuefnið nálgaðist krónu umræðu efnið fór ég að verða kvíðinn.....Enda kom mikið úfffffff í ljós..... rúmar 810 þúsund krónur....og okkar hlutur um 660 þúsund krónur.Það eru rúm 6 ár síðan að strákurinn okkar var í svona meðferð og þá var hlutur Tryggingarstofnunar sá sami 150 þúsund krónur.

Þegar  allt hefur hækkað á 6 árum ....Hvernig getur Tryggingastofnun verið með sama framlag og þá ?????

Ég næ þessu ekki .......

Tek að mér auka störf við að spila í afmælum ,jarðaförum,giftingum ofl ofl ofl get líka vaskað upp og bónað bíla, vafasöm sem lögleg djobb ,næturvinnu og bara allt.

Einar Bragi 


Kemur í staðinn fyrir Rjúpnaveiðar ????????????

Er það ekki góð hugmynd ......selja leyfi á útilegukindur.

Nú er orðið erfitt að ná í lax og rjúpnaveiðin í lágmarki......ég væri til í þetta........Lambakjöt á diskinn minn takk.

tal_67_kindur

  


mbl.is „Ljónstyggar og fráar á fæti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.8.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 222667

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband