klukk æði ok þá átta leyndarmál hér

1.Var skotinn í Bryndísi Schram í gamla daga
2.hata bræddan ost(fæ mér ostlausa Pizzu)
3.Geri no 2 helst bara heima hjá mér.
4.Elska Diskó og Funk
5.Er hálf hræddur við að fara á hestbak
6.Get hætt við að kaupa veitingar á veitingaúsum eða ís búðum ef mér finnst starfsfólkið subbulegt.
7.Er sólginn í ___
8.Elska konur og börn
Nú þarf ég að klukka einhverja hmmmmmmmm

Móðir jörð-uppáhaldslínurnar mínar

Létt og glettin indin tæra

Litlu blómin er að næra,

Hoppar niður stall af stalli,

Stystu leið úr bröttu fjalli.

Hún er lítil lækjarspræna,

Læðist hljóð um bala græna,

Vökvar allan veikan svörð.

Verndar landið-Móðir Jörð.

 

Víðlendur með vötn og hálsa

Vekja kjark og hugsun frjálsa.

Fylla brjóstið ferskum anda,

Færa lausn á mörgum vanda.

Brátt við munum burtu hverfa,

Við biðjum þá sem landið erfa

Að standa um þig sterkan vörð

Í stormi lífsins-Móðir jörð.

Höf:

Hákon Aðalsteinsson.

 


Þarf hún þá ekki stiga

til að kyssa hann.......Þetta gæti verið áhugavert að fylgjast með í svona raunveruleikasjónvarpiSmile

Mér dettur ýmislegt annað í hug sem er varla prenthæft í sambandi við þettaDevil


mbl.is Hæsti maður heims giftir sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuggar titillag disksins komið á síðuna

Skuggar fjallar um drauga,svipi eða vætti sem læðast yfir landið og er sungið af söngprinsessunni Björt Sigfinns sem mér fannst hafa einstaklega flotta rödd fyrir þetta lag.NJótið og gefið comment á lögin.

Svo að ég fari aðeins yfir þetta þá er Móðir Jörð óður til landsins okkar og passar kannski vel við þegar að menn rífast um virkjanir eða ekki virkjanir.Söngur Erna Hrönn

Nú er allt svo hljótt er einskonar sjálfspæling eða réttara sagt fortíðarpæling þar sem að sá sem syngur sér sjálfan sig.söngur Sigríður Beinteinsdóttir

Kvöldljóð Andreu er einstaklega fallegt vögguljóð Móður til dóttur.
Söngur Alda Sif

Á.B.E er tileinkað Ásdísi Birtu Einarsdóttur f.30.12.1994 d.01.01.1995.
Einar Bragi Bragason sax

Átta önnur lög eru á diskinum og er mikill boðskapur í ljóðum Hákonar.

Diskurinn kemur út þann 16.júlí(samkvæmt síðustu fréttum.)


Verum heiðarleg stillt og góð í dag

Þá get ég líka verið í fríi það er nefnilega sól og sumar og mér finnst ég eiga það skilið að fá að slappa afSmile.

Er sem sagt að vinna í sumardjobbinu í dag og á morgun og hinn og hinn og hinn og hinnSleeping.

Ef það væri bara pínulítið meira að gera við að spila hér fyrir austan þá gæti ég slakað meira á......en það er að sjálfsögðu bara þessi efnishyggja sem lemur mann áfram......jæja hættur að væla og skæla enda sól og blíða...................og mótmælendalaust Austurland


Mæli með plasti

Þá væri hægt að ganga um miðborg Rvíkur og fyrir utan alla skemmtistaði á landinu án þess að eiga hættu á að meiða sig.
Það er líka erfiðara að slasa menn og mýs með plastflöskum ekki satt.
mbl.is Dæmd í fangelsi fyrir líkamsárásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Toto

FrownKomst ekki vegna vinnu , er ekki glaður yfir því ,vinur minn hringdi í mig af tónleikunum bara til að svekkja mig og þar heyrði ég þrátt fyrir símahljóð að þarna voru flottir tónleikar í gangi.

Á tónleika með þeim á DVD horfði á þá í staðinn.....ekki það sama, en samt betra en ekkert.

Annars er ég að deyja úr spenningi út af disknum mínum og get varla beðið eftir því að fara suður og ná í hann........Þið megið alveg bjóða mér í partý þegar þið sjáið að ég hef farið suður að ná í hann.Smile


Enn eitt af disknum Skuggar

Kvöldljóð Andreu söngur Alda Sif Magnúsdóttir og eins og öll hin ljóðin er það eftir Hákon Aðalsteinsson og lagið eftir mig.

Gott en ekki nóg

Það þarf td að tengja Austurland betur saman í heild..það þarf ekki fl. vegir á Reykjavíkursvæðinu(þarf að kenna fólki að nota almenningssamgöngur).
bendifólki á að skoða http://www.sfk.is/samgong/index.php?option=content&task=view&id=64&PHPSESSID=6e805e8b942f8207bc5fe8e11483e71d
mbl.is Vegir færðir í nútímalegt horf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ææææææææææææææææ

Er þessi vitleysa að byrja aftur....ég er eins mikið á móti þeim sem koma hingað til lands eingöngu til að láta taka eftir sér og ég er á móti því að senda litla ljóshærða íslenska stelpu í Íslenska þjóðbúningnum með blóm að taka á móti álforstjórum.

Mótmæli eiga að sjálfsögðu rétt á sér en þau þurfa að fara skynsamlega fram.

Þetta var svo sem í lagi í Kringlunni en miðað við undanfarin ár þá verður þetta sami sirkusinn og áður von bráðar.


mbl.is Stóriðju og neyslumenningunni mótmælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband