Jólasveininum sagt upp

Já kæru vinir mín bíður erfitt verkefni í dag,ég þarf að tilkynna jólasveininum að það sé hætt að trúa á hann á heimilinu mínu.InLove

Ég veit ekki hvernig ég á að segja honum þessar sorgarfréttir og ég veit að hann á eftir að sakna þess að hafa mig ekki lengur sem aðstoðarmann sinn.

Í mörg ár hef ég staðið við mitt opnað fyrir hann dyrnar,hjálpað honum að læðast um húsið  gefið honum upplýsingar og hegðun og svefntíma.

Þessi setning í gærkvöldi ....Pabbi jólasveinninn er ekki til, fór alveg með það......en mig grunar samt að með smá kænsku sé vonandi hægt að snúa dæminu aftur við............enda er ég óttalegur jólasveinn.SmileSL-2SantaFin360


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Ég trúi á jólasveininn og mun hafa enn meira álit á honum ef Seyðisfjörður fær það í skóinn að "gamla Ríkið" fær að standa með reisn áfram.   Eigandi þess undanfarna áratugina,  hefur algerlega vanrækt viðhald hússins,  og gæti þess vegna fengið kartöflu í skóinn, ef hann bætir ekki ráð sitt.

Jón Halldór Guðmundsson, 11.12.2007 kl. 09:50

2 Smámynd: Þorbjörn

Að allt öðrum handlegg á allt öðrum manni:

 Einar, hefur þú einhverjar fréttir af snjóalögum í Stafdal? Fer ekki að styttast í opnun þar?

Kv. Þorbjörn

Þorbjörn, 11.12.2007 kl. 09:54

3 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Með stafdalinn fagra.....Troðarinn okkar nýi er kominn á hafnarbakk úti og bíður eftir skipsfari hingað.....nýi skálinn er væntanlegur á hverri stundu .....hefðum líklega getað opnað nú í vikunni en hlákan sem er núna gerir út um það að ég held.

Einar Bragi Bragason., 11.12.2007 kl. 10:00

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Kæri Einar Blásríkur,

Okkur jólasveinum þykir leitt að sjá að þú sért fallin í þá gryfju að útbreiða einhverja siðmenntaða vantrú á okkur bræðurna.

Á móti höfum við ákveðið að trúa ekki lengur á 'tréblásturshljóðfæraleikara' & hér með er þér harðbannað að leika jólalög.

Tuðsuði bloggjólasveinn...

E.s. 

Að öðru, & öðrum lesöndum til upplýsingar þá höfum við verið vel skíðandi í mínu póstnúmeri alla vikuna eins & frægt er.

Steingrímur Helgason, 11.12.2007 kl. 10:42

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Við Jólasveinarnir í Bjólfinum notum bara ekta snjó ekki neitt drasl.....

Einar Bragi Bragason., 11.12.2007 kl. 11:13

6 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Hey ég afskrifaði þetta of fljótt .........hún er að snúast aftur.......he he er búinn að vera að vinna í málinu

Einar Bragi Bragason., 11.12.2007 kl. 18:42

7 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Svona svona Jólasveinn. Vertu ekki svona sár ,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Kjartan Pálmarsson, 11.12.2007 kl. 21:52

8 Smámynd: Ingigerður Friðgeirsdóttir

Ég var nú spurð áðan hvort Kertasníkir yrði jafn hagsýnn og undanfarin jól og kæmi með náttföt í skóinn á aðfangadag. Gæti verið að hann vissi að við værum stundum blönk um jólin og bjargaði jólanáttfötunum. Sá minni er farin að læra setninguna utanað ég er að spara fyrir jólin ekki suða.

Ingigerður Friðgeirsdóttir, 11.12.2007 kl. 22:01

9 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

kl er 01.14 og hann er ekki enn komin.......hvað á ég að gera.....Hjálp

Einar Bragi Bragason., 12.12.2007 kl. 01:14

10 identicon

Á mínu heimili var jólasveinninn ráðinn í vinnu aftur af nærri 18 ára heimasætunni. Hún fékk stjörnur í augun þegar "jólasveinka" rifjaði upp hvað hefði verið gaman að gefa henni í skóinn í den...sá þarna möguleika á ýmsu blingi og öðru pjattrófudóti

Bylgja (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 08:52

11 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Hann kom loksins , veit ekki klukkan hvað......allavega var eitthvað í sokkinum í morgun.......

Einar Bragi Bragason., 12.12.2007 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 222194

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband