Skallapopp er listgrein ......

Hef verið að velta þessu fyrir mér siðan um Verslunarmannahelgina en þá var ég að spila á Akureyri....

Á Sunnudagskvöldinu voru tónleikar á Íþróttaleikvangi Akureyrar þar sem meðal annars voru leikin lög sem að  Villi Vill gerði ódauðleg og Pálmi Gunnars...

Mér varð nefnilega hugsað til þess að flest þessi lög falla undir þessa skemmtilegu skilgreiningu SkallapoppWink.

Þegar að öll brekkan söng með lögum eins og Ég er á leiðinni,Hvers vegna varstu ekki kyrr og Bíddu pabbi.....gat ég ekki anað en heillast og hugsað vá þetta eru góð lög fyrst þau lifa svona í hugum og hjarta þjóðarinnar......Skallapopp er List.

Það var mér mikill heiður að fá að taka þátt í þessari kvöldstund. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Einar, öll lög sem þú spilar núorðið hljóta að vera 'skallapopp' ..

Steingrímur Helgason, 17.8.2008 kl. 23:04

2 Smámynd: Anna Þóra Jónsdóttir

Þá er aftur komið að þessari sígildu spurningu - hvað er list? Fólk virðist oft hafa skoðun á því hvort eitthvað sé list eða ekki en getur svo yfirleitt ekki skilgreint fyrirbrigðið nánar. Er ekki list ekki annars yfirleitt metin út frá þeim tilfinningalegu áhrifum sem hún hefur á áhorf og heyrendur. Ef þeir hrífast er það nokkuð gott merki um að vel hafi tekist til í listsköpuninni. List sem er bara upptekin af því að vera "listræn" en heillar/sjokkerar engan kemur til með að hafa lítil sem engin áhrif á listneytendur.

Vilhjálmur Vilhjálmsson er löngu orðið sígildur listamaður í hugum Íslendinga og ef hans verk falla undir skilgreininguna um skallapopp - þá þyðir það einfaldlega að skallpopp sé list 

Ég er svo líka sammála Steingrími hér að ofan.......Þetta segir sig auðvitað sjálft.

Anna Þóra Jónsdóttir, 17.8.2008 kl. 23:22

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nú ertu aðeins að ´týna þér Einar minn skallinn í skilgreiningarflækju og karpþörf!

Að vísu var nú sumt sem vilhjálmur söng ekki alltaf það besta né hann alltaf í toppformi, en hvorki hann né pálmi og tónlist nafna míns Eiríks hefur fallið sérstaklega undir skallapopp.Það eru þá nýjar fregnir í mínum eyrum!

Magnús Geir Guðmundsson, 18.8.2008 kl. 00:42

4 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Ha Magnús.......veit ekki betur en að Magnúsarnir Eiríksson og Kjartansson , Gunni Þórðar og Pálmi...hafi allir fengið skallapopparstimpil á sig

Einar Bragi Bragason., 18.8.2008 kl. 01:27

5 identicon

allt saman þvæla, þú ert góður músikant Einar. Þetta er bara sígilld músik af því að fólk fílar hana, þar á meðal ég. Stjórnin bar af á sínum tíma, frábært band og vel unnið. Skallapopp, hvað er það? Bull.

sandkassi (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 09:28

6 identicon

Einar er gúrú ... Einar er með skalla eins og ég ... ég treysti því honum algjörlega í öllum skilgreiningum á skallapoppi 

ég hefði viljað vera í brekkunni þarna en var vant við látinn heima. Sá flugeldana út um gluggann...

Ein hugmynd: af hverju eru svona kvöldstundir ekki teknar upp á band og gefnar út á disk? Ég held það gæti selst. - Kannski bara Draumar í mér ... ?

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 10:31

7 Smámynd: Björg Árnadóttir

Skallapopp eða ekki => barasta frábær músík!

En ég ætla spyrja ykkur tónlistarvitringana (aðallega þig Einar Bragi  ) Í hvaða flokk er tónlist eins og t.d. Langi Seli og Skuggarnir spiluðu sett? Búin að velta þessu fyrir mér öðru hvoru í óratíma. Mér finnst þeir m.ö.o. frábærir!

Björg Árnadóttir, 18.8.2008 kl. 23:18

8 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

oddi fín hugmynd með DVD ég skil þetta ekki heldur.....frábærir tónleikar eins og þarna í flottu sándi..

Björg....LSS var frábærlega skemmtilegt band ég á plötuna einhversstaðar.......fellur þetta ekki bara undir Rockabilly eða shuffle.....

Einar Bragi Bragason., 19.8.2008 kl. 00:34

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Rockabilly að sjálfsögðu með þá Sela og Skuggann & Co. fyrst og síðast.

Skal ekkert fullyrða Magnús K. en hinir hafa einfaldlega markað spor í svo mörgu og svo víða, að þetta gengur nú ekki upp hjá þér karlinn minn! En þetta með DVD útgáfu á viðburðum eins og á Akureyrarvelli stendur nú upp á ykkur músíkkantana sja´lfa ekki satt ásamt aðra rétthafa sem í hlut ættu, spurning bara að kýla á þetta ef menn geta komið sér saman um smáatriðin og hvernig skipta ætti svo "hugsanlegum gróða"!

Ekki satt?

Magnús Geir Guðmundsson, 19.8.2008 kl. 00:49

10 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

víst gengur þetta upp hjá mér karlinn þinn he he ekki vera með þessa Jensísku

Einar Bragi Bragason., 19.8.2008 kl. 02:01

11 identicon

það er skemtileg staðreind að Jens á og fann upp orðið skallapopp á sínum tíma ásamt orðinu hrukkujukk.

viðar (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 10:03

12 identicon

Átti að vera staðreynd, sorry!

viðara (IP-tala skráð) 19.8.2008 kl. 10:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 222189

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband