Besta sál Íslenskrar Rokksögu farin....Hr Rokk

runarjRúnar Júlíusson látinn Rúnar Júlíusson tónlistarmaður og útgefandi lést aðfararnótt föstudagsins 5. desember af völdum hjartaáfalls. Útgáfufyrirtæki hans Geimsteinn hélt árlega útgáfukynningu sína á veitingastaðnum Ránni fimmtudagskvöldið 4. desember þar sem listafólk útgáfunnar var saman komið. Rúnar var að fara á svið til að syngja og var að teygja sig eftir gítarnum þegar hann kenndi sér meins. Hann var fluttur á Landspítalann Háskólasjúkrahús þar sem hann andaðist. Guðmundur Rúnar Júlíusson fæddist í Keflavík 13. apríl 1945, sonur Júlíusar Eggertssonar múrarameistara og Guðrúnar Stefánsdóttur Bergmann. Rúnar varð kunnur knattspyrnumaður á unglingsárum sínum og lék með Keflavíkurliðinu þar til hann sneri sér að tónlist.

Rúnar var bassaleikari í Hljómum sem varð landsþekkt eftir að sveitin kom fram í fyrsta sinn 5. október 1963 í Krossinum í Innri Njarðvík. Rúnar varð fljótlega vinsæll söngvari og tónlistarmaður sem vakti aðdáun hvar sem hann kom.

Hann starfaði í Hljómum þar til hann stofnaði Trúbrot með félögum sínum vorið 1969.

Þegar Trúbrot hætti 1973 voru Hljómar endurreistir og stuttu seinna kom Lónlí blú bojs fram á sjónarsviðið. Rúnar og Gunnar Þórðarson stofnuðu Hljóma útgáfuna um þessar mundir sem gaf m.a. út plötur Lónlí Blú Bojs.Rúnar og María Baldursdóttir lífstíðarförunautur hans stofnuðu hljómplötuútgáfuna Geimstein árið 1976, sem er í dag elsta hljómplötuútgáfa landsins með samfellda sögu.

Rúnar gerði nokkrar sólóplötur og starfrækti næstu árin hljómsveitina Geimstein. Hann stofnaði Áhöfnina á Halastjörnunni með Gylfa Ægissyni 1980 en starfrækti lengst af Hljómsveit Rúnars Júlíussonar, sem hét undir það síðasta Rokksveit Rúnars Júlíussonar. Hann stofnaði GCD ásamt Bubba Morthens 1991.

Sú hljómsveit gaf út þrjár plötur sem nutu mjög mikilla vinsælda. Árið 1982 settu Rúnar og María á laggirnar hljóðver á heimili sínu Skólavegi 12 í Keflavík. Það nefndist í daglegu tali Upptökuheimilið Geimsteinn. Rúnar starfrækti hljóðverið og útgáfufyrirtækið til hinsta dags.

Hann gaf út um 250 hljómplötur með fjölda listamanna. Þar á meðal má nefna hljómsveitina Geimstein, Áhöfnina á Halastjörnunni, Maríu Baldursdóttur, Bjartmar Guðlaugsson, Þóri Baldursson, Deep Jimi and the Zep Creams, Hjálma og Baggalút. Fyrir fáeinum dögum kom út þriggja platna safnútgáfan Söngvar um lífið 1966-2008 þar sem Rúnar flytur 72 þekktustu lögin frá ferlinum.Rúnar var einn dáðasti rokkari landsins og kom ævisaga hans Hr. rokk út 2005, sem Ásgeir Tómasson skrásetti.Rúnar Júlíusson lætur eftir sig eiginkonuna Maríu Baldursdóttur, synina Baldur og Júlíus og 6 barnabörn.

Á sama tíma og ég sendi í fjölskyldu Rúnars samúðarkveðjur þá er skrítið að hugsa til þess að ég og Rúnar áttum síðast samtal í gærmorgun þar sem að hann hefur gefið út með mér plöturnar mínar og stutt mig vel.

Í raun er það í annað skiptið á æfinni sem að hann hjálpar mér því að ég var ekki nema 16-17 ára þegar að og félagar mínur tókum upp fyrst í stúdíóinu hans í Keflavík. 


mbl.is Rúnar var mentorinn, idolið okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Óviðeigandi og leiðinleg satt best að segja athugasendin hér að ofan að hálfu leiti, okkur sem höfum hnuggin hugsað til góðra minninga um afbragsmann kemur ekkert við hvað einum eða öðrum líkaði mikið eða ítið við eitthvað!

En Einar minn, maður er svona nú um miðja nótt, sólarhring síðar, aðeins farin að átta sig á að þetta sé staðreynd. Hins vegar er ég viss um að rúnar hefur viljað að menn minnist hans fyrst og fremst á jákvæðum nótum og það hef ég reynt að gera í dag.

Magnús Geir Guðmundsson, 6.12.2008 kl. 02:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 222189

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband