Jazzferðin til Sortland

Jazzhátíðin í Sortland 2007.

Ég fór á Sortland Jazzhátíðina ásamt Jóni Hilmari Kárasyni gítartrölli og þremur ungum söngkonum þeim Tinnu, Sigurveigu og Björt.
Flogið var snemma morguns frá Keflavík til Osló þar sem að við lentum greinilega á háanna tíma og voru biðraðir við öll afgreiðsluborð.

Eftir að fhafa verið send fram og til baka eftir að hafa beðið mislengi í nokkrum biðröðum, endaði það með því að við misstum af fluginu sem við áttum til Evenes en sem betur fer var annað flug þangað seinna um daginn sem við náðum og lentum í Evenes um kl 20.00 það kvöld.

Frá Evenes var tekin rúta til Sortland og tók sú ferð um einn og hálfan tíma.

Er komið var til Sortland var tekið vel á móti okkur af þeim Tim(góður saxófónleikari og einn af aðalgaurunum í skipulagningu Sorlandjazz) og vini mínum Finn Sletten sem var að leika á Jazzhátíðinni sem sessionhljóðfæraleikari með kammer Jazzkór(kammerpikerne).

Var okkur réttir bíllyklar af þessum fína SAAB sem við höfðum til umráða allan tímann í Sortland.

Ekki var farið beint að sofa þetta kvöld heldur haldið á tónleika sem við náðum síðustu lögunum á.

Var þar á ferðinni norskur snillingur sem heitir Gisle Börge Styve en hann er mjög þekktur í Noregi sem annar píanistinn í norsku útgáfunni af ÞAÐ VAR LAGIÐ.

Gisle og hans band léku magnaðar húmorískar útgáfur af þekktum popp og Jazz standördum má þar nefna lög eins og I was made for loving her (Kiss) og Kiss(Prince)

Að sjálfsögðu var spjallað mikið við Finn þar sem að hann er magnaður trommari og vinur en meðal annars leikur hann í 2 lögum á Skuggum ,Litið um öxl og Á.B.E.

Að lokum fórum við að skoða staðinn sem við áttum að gista ,en það var í Sigerfjord sem er rétt fyrir utan Sortland.

Þar höfðum við gamalt timburhús til umráða stutt frá sjónum og veitingastaðnum Nausted en þar höfðum við Jón leikið fyrir 2 árum.

Morguninn eftir vorum við Jón fyrstir á fætur og sömdum fyrsta lag dagsins (sömdum eitt bull laga á dag)(þetta var straulagið) en það er ekki hægt að lýsa hvernig veðrið og umhverfið var þennann morgun.

Stilla, sólin nýkomin upp og skógivaxnar hlíðar alveg niður í sjávarmál.

Þessi dagur fór rólega af stað bærinn var skoðaður og stelpunum sýndir þeir staðir sem eru okkur í fersku minni(þær sögðu að við værum eins og gömul hjón að rifja upp brúðkaupsferðina).

Kl 17.00 var síðan okkar fyrsta æfing með trommaranum Hákoni og bassaleikurunum Rassmus.
Sú æfing gekk fínt og vorum við glaðir að hafa fengið svona góða spilara.
Æfingin fór fram í tónlistardeild framhaldsskólans í Sortland.

Eftir matinn um kvöldið var síðan farið á tónleika með
Gabriele Mirabassi íÍtölskum klarinettleikara og sænska Píanistanum Lars Jansson en Lars var einmitt hér á Íslandi í sumar og heillaðist af landi og þjóð .
Með þeim lék hljómsveit Norska hersins í Harstad ásamt nokkrum öðrum vel þekktum Norskum spilurum.

Kvöldið endaði með spjalli við Lars um tónlist ofl.

Föstudagur….
Jón og ég fyrstir að venju á fætur og lag dagsins var um að vakna(ekki frumlegt).
Ég og Jón forum aðeins yfir það sem þyrfti að laga einnig spiluðum við 6 lög í verslunarmiðstöð í bænum svona til kynningar.

Um kvöldið var farið á Tónleika með Etienne Mbappe bassaleikara og hljómsveit , tónlist hans má líkja við Afríku plötu Paul Simon en með Etienne var alveg magnað band og átti ég fínst spjall við saxistann hans eftir giggið.
Björt sem kom ekki með okkur til Noregs kom síðan þetta kvöld og þá vorum við kk allt í einu orðnir í minnihluta úffff.(he he)….Klezmer band lokaði gigginu þetta kvöldið en ég verð að viðurkenna að það heillaði mig ekki.

Laugardagur…
Lag dagsins gleymdist
Æfing með öllum(Björt var komin) var það fyrsta sem við gerðum og svo var farið á tónleika með Norskum kvensaxista að nafni Fröy sem þekkir Óskar Guðjóns saxista.
Lék hún svona ekta þungan skandinavískan Jazz ekki alveg mín tegund en alveg ágætt.

Malene Mortensen var næst og var ákveðið að mæta snemma og ná góðum sætum…..sú danska stóð fyrir sínu og vel það ….flott söngkona með flott band.

Á eftir Malene var bekktur Norskur Blúshundur sem lokaði í kvöldinu og með honum söng einnig kona þarna af svæðinu sem heitir Marith og er alveg með magnaða rokk og blús rödd.
Þess má geta að Marith og Ketill Stokkan sem ég þekki líka eru vinir.

Jammsession var loka atriði kvöldsins og lékum við Jón Þar 2 lög með einhverjum flottum spilurum þar á meðal Hákon og Oddmund bassatrölli norður Noregs.

Sunnudagur
Fyrst lékum við nokkur lög fyrir erlenda ferðamenn við Ferjuhúsið í Sortland og síðan voru það tónleikar okkar í Nausted.

Tónleikarnir gengu mjög vel og var gaman að sjá hvernig lögin virkuðu á gestina, stelpurnar slógu í gegn og eftir tónleikana fengum flott comment frá mikið af Norsku tónlistarfólki sem var á tónleikunum.

Borðað var á Stedet um kvöldið með einlægustu aðdáendunum okkar Johansen systrum(þær eru allt í öllu í þessum Jazzklúbbi)

Það sem stendur upp úr þessari ferð er hvað fólkið þarn er yndislegt og þakklátt.

Að fá að leika mín lög og önnur á tónleikum og sjá hve vel þau virka.
Sambönd við aðra tónlistarmenn sem maður nær vonandi að nýta sér tónlistarlega í framtíðinni.

Að lokum vil ég þakka gítartröllinu Jóni Hilmari, Björt ,Tinnu og Sigurveigu fyrir ferðalagið…..
Tim,Steinar,Hákon,Harald Johansen systrum,Finn ofl í Jazzklúbbinum þarna úti…….. det var jytte bra.

Gullkorn úr ferðinni.
Stjarnfræðisetur…………. orð sem 14 ára Norskur gutti kunni, Sagðist kunna eitt orð á Íslensku og þetta var orðið….alveg satt.

Helvítis hasskaka…….orð sem drukkinn eldri maður frá Lofoten kunni.

Jag vil ha en ber…….Jón Hilmar að biðja um öl á Norsku.(Norsk ber eru örugglega fín he he)

EBB



Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Skemmtileg ferðasaga.

Steingerður Steinarsdóttir, 19.9.2007 kl. 15:21

2 identicon

Hefur greinilega verið góð ferð. Og velkominn heim.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 16:48

3 identicon

takk fyrir æðislega ferð.. væri hrikalega gaman að fara aftur þangað, enda yndislegur staður. Ég er eiginlega bara með heimþrá :(

Tinna (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 19:27

4 Smámynd: Björg Árnadóttir

Maður hefði kannski átt að læra með þér á hljóðfæri í von um að komast með þér í svona frábæra ferð? Gott að vel gekk og velkominn heim!

Björg Árnadóttir, 19.9.2007 kl. 20:03

5 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Björg þér var nær he he he.....þú varst nú svo miklu stærri en við litlu gaurarnir að þú hefðir getað lært á kontrabassa...

Tinna já og já þetta var gaman.......ertu nokkuð komin með ofnæmi fyrir skjöldóttum dýrum með hornum...he he

Einar Bragi Bragason., 19.9.2007 kl. 20:50

6 identicon

nei nei nei ekkert ofnæmi enn hehe... og held að það komi ekkert ;)

Tinna (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 12:00

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Það að fara til Noregs & geta skemmt sér vel, sýnir náttúrlega þann innri gleðimann í þér.  Til hamíngju með túrinn & takk fyrir góða ferðasögu.

S.

Steingrímur Helgason, 21.9.2007 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 222146

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband