Ó já þess vegna er gott að búa úti á landi

í dag var hið fínasta veður hér þó að enginn Veðurfræðingur hafi talað neitt sérstaklega um það ...18 stiga hiti og sól.Smile

Á svona dögum er vinsælt hjá krökkunum að hoppa af brúnni yfir Fjarðará og kæla sig aðeins og var engin breyting á því í dag nema að þau fengu gest.

Svona gestir eru vanir að láta sjá sig á veturna hér í lóninu við Fjarðará en þessi vildi greinilega fá skoða mannabörnin að sumarlagi og var ekkert feiminn við að láta taka myndir af sér.LoL

Í kvöld fór ég svo á gæsaskytterí og náðum við 8 stk.Wink

Á leiðinni á skytteríið rákumst við á nokkur Hreindýr við vegakantinn sem vissu greinilega ekki að Hreindýraveiðitímabilið er í hámarki..... Ó já Það eru forréttindi að búa á landsbyggðinni.Tounge

IMG_5179

 

IMG_5178PS þess má geta að engin hnífstunga varð hér um helgina og enginn barði lögregluþjón.Cool
IMG_5180

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Heyr, heyr !!

Anna, 8.9.2008 kl. 06:46

2 identicon

Æðislegar myndir og góður punktur þetta með hnífsstunguna og lögreglubarninginn... það er nefnilega gott að búa úti á landi!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 07:50

3 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Það er nefnilega gott að búa á Seyðisfirði!  (Betra en í Litháen).

Jón Halldór Guðmundsson, 8.9.2008 kl. 11:13

4 Smámynd: Ísdrottningin

Nú gæti ég grátið *sniff*

Ég komst nefnilega ekki úr bænum yfir helgina svo ég verð að þrauka fram að næstu helgi...

Ísdrottningin, 8.9.2008 kl. 11:14

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þú ætlast samt vonandi ekki til að ég SKÁLI fyrir því að engin stakk neinn þarna né réðist á lögguna?

En Einsi minn kaldi, en þó ekki úr Eyjunum, drögum samt ekki fjöður yfir að ýmislegt miður fagurt gerist á minni stöðum líka!

Magnús Geir Guðmundsson, 9.9.2008 kl. 00:37

6 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og hér var nú um það bil sama blíðan, í bænum okkar Dodda og engin sagði frá því heldur!

Magnús Geir Guðmundsson, 9.9.2008 kl. 00:38

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Og hér á Agureyris höfum við líka tvær andanefjur sem alltaf eru að sýna sig. Umferðaröngþveiti daglega á Drottningarbrautinni. Ég held þær hafi áttað sig á þvi hve agureyringar eru skritnar verur, því þæ koma alveg upp að landi og halda sér lóðrétt uppi, bara af forvitni. En þetta eru flottar myndir Saxi og þetta minnir mig á Eyvindaránna og að alltaf er verið að stökkva af gömlu brúnni þar. Sonur minn var ekki nema 7 eða 8 ára gamall þegar hann byrjaði á því og heldur því enn áfram orðinn 24 ára. Það er að vísu talsvert hærra fall en líka dýpri hylur.

Haraldur Bjarnason, 9.9.2008 kl. 23:23

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Við erum 'zweidavargar' & skemmtum okkur yfir því hvað aðrir skilja svona gæði lítt.

Alla vega á meðan flugztrípan í Vatnsmýrinni heldur !

Steingrímur Helgason, 10.9.2008 kl. 00:47

9 Smámynd: Bjarney Hallgrímsdóttir

 og ekki má gleyma að eiturlyfin eru gerð upptæk á Seyðis... ekki amalegt það

Bjarney Hallgrímsdóttir, 10.9.2008 kl. 20:19

10 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Mér þykir það leitt Saxi minn en ég lenti í einhverju sem kallað er KLUKK, þetta er svona keðjubréf. Ég hef nú alltaf sltitið svoleiðis en vildi ekki gera bloggfélögum það núna. Var búinn að klukka tvo sem rét voru víst búnir í þessu svo ég KLUKKA þig......nánar um þett á minni síðu.

Haraldur Bjarnason, 10.9.2008 kl. 22:49

11 identicon

Ekki er þetta selurinn sem Seyðfirðingar drápu sl. þriðjudag?

Jón Knútur. (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 11:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 222145

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband