Fjarðarheiði 2

Verð að segja að þetta fjölmiðlafár er búið að vera svolítið fyndið......Mogginn fær brjálæðiskast og setur þetta á forsíðu 2 daga í röð og einungis ljótleikan í kringum þetta.
Eitt hefur gleymst í þessu en það er að þeir sem standa fyrir þessari virkjun vildu fá að setja upp stórt skilti og jafnvel 2 sitthvorum megin við FJarðarheiði með með framtíðarmyndum af svæðinu til upplýsinga fyrir ferðafólk en var neitað af vegagerðinni vegna umferðahættu.
Landsvirkjun mátti setja upp skilti út um allt út af Kárahnjúkum.

Myndir í mbl í dag sýndu ekki þetta.

Hér sést hvað þeir virkjunarmenn á Fjarðarheiði munu ganga vel frá eftir sig.
þarn á samt eftir að sá en það er búið að slétta jarðveginn og eftir nokkurár sést ekkert.....og öll rör neðanjarðar ekki eins og sogrör út um allt eins og á Hellisheiði.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Loksins þegar verið er að gera eitthvað vitrænt þá fá menn heimskuköst

Þessi virkjun er eins náttúruvæn og hægt er ólíkt Kárahnjúkavirkjun......þetta kallar maður að rota bakara fyrir smið.
Held að Hjörleifur Gutt sé endanlega orðinn brjálaður.
Auðvitað á að fylgjast með og veita mönnum aðhald en ég hef séð hve frágangurinn er góður þarna þar sem búið er að leggja rörin, þó að vissulega sé þetta ljótt núna.
mbl.is Orkustofnun geri tafarlausa úttekt á Fjarðarárvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veistu ekki hvað ríða er

Jæja nú styttist í að skólarnir fari að hefjast og datt mér í því tilefni í hug þessi sanna frásögn úr Tónlistarkólanum mínum á Seyðisfirði.

Ég var að kenna einum nemanda inn í kennslustofu og tíminn var alveg að verða búinn er ég heyri að næsti nemandi var kominn.

Hann var greinilega ekki einn á ferð og heyrðist vel í þessum snáðum(þess má geta að kappinn er 9 ára gamall og skröllar svolítið).

Allt í einu heyri ég greinilega að kappinn segir hátt og snjallt með tiheyrandi skrölli ....og hann var á fullu að ríða henni....
ég opnaði dyrnar og segi við kappann....Hvað varstu eiginlega að segja......leit þá kappinn á mig stein hissa og segir um leið hva veistu ekki hvað ríða er......

Þess á geta að þeir voru að tala um atburð sem gerðist fyrir utan lóðina hjá þeim en þar hafði hundur farið á tík.

Þetta er ein ástæðan fyrir því að mér finnst gaman að kenna......maður veit aldrei hvað dettur upp úr börnunum.


Versló

Jæja sit hér heima konan og dóttirin sofnaðar ,drengurinn er á Akureyri en sem betur fer þarf ég að hafa litlar sem engar áhyggjur af honum nema það að hann er bara 18 ára og því ekki vinsæll hjá bæjaryfirvöldum á Akureyri.
Var nú sjálfur að spila á Akureyri með meistara Bó Hall og hljómsveitinni Von.

Bó var magnaður og strákarnir í Von stóðu sig frábærlega, þeir kunna nefnilega eitt sem sum bönd vilja gleyma það er að það skiptir líka máli að það sjáist að hljómsveitin hafi gaman að þessu.

Annars var líka frabært að spila Tinu Turner showið á föstudaginn á Neistaflugi og voru kellurnar Sigga B og Bryndís Á. lang flottastar.

Fór síðan í famelíutúr á Neistaflug í dag og rölti þar um bæinn, veðrið var fínt og virtust allir skemmta sér konunglega......allt í sóma í þeim bæ og flott dagskrá.

He he annars var ég að fá mér nýjan bíl á Fimmtudaginn og á aðeins nokkrum dögum er ég búinn að aka honum 1200 km og þvo þrisvar.

á morgun(Mánudag) á svo að slappa af og gera eitthvað sniðugt......


er ekki alltí lagi

Þetta er útí Hött en kannski verður þetta til að einhver ríkur Íslendir kaupi liðið:)
mbl.is Leeds byrjar með 15 stig í mínus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKUGGAR í öllum búðum

Diskurinn okkar Hákonar á nú að fást  allsstaðar á landinuSmile  og er í 8. sæti á BT listanum

Versló

Jæja nú er að drífa sig til Neskaups og svo Akureyri að spila...reyni að koma með eitthvað vitrænt eftir helgi....Góða helgi

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband