Ég er ekki vinstri grænn

Frekar enn Sjálfstæðismaður,......en í þessu er ég sammála þeim vinstri grænu.

Ég er pínu hræddur við þennan nýja meirihluta í borginni......

FLUGVÖLLURINN VERÐUR AÐ FÁ AÐ VERA Í FRIÐI.

Svo er annað sem ég heyrði um daginn...það er að skólafólk fái áfram frítt í strætó í Reykjavík en ekki krakkar af landsbyggðinniAngry.......HVAÐ ER Í GANGI.


mbl.is VG í Skagafirði mótmælir flutningi Reykjavíkurflugvallar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

það getur vel verið að þannig séu lögin......en þegar að öll rök og ég meina ÖLL RÖK hjá þeim sem vinna við flug eru á sama máli......það er að hann er best kominn þar sem hann er....þá á fólk að hlusta ekki satt.

Nú veit ég ekki Guðjón hvað þú gerir en trúi því samt að ef fólk sem hefur ekki sama vit á þinni faggrein og þú færi að skipta sér af þinni vinnu.....yrðir þú pirraður.

Skipulagsmál ó já.....þarna væri troðið enn meiri steypu og Borgin sem er líka borgin mín yrði ljótari.....Gisti alltaf á Hótel Garði á ferðum mínum suður ,sem eru ansi margar og það eru ekki flugvélar sem vekja mig á morgnanna....heldur umferðin.

Sjúkraflug....spáirðu ekkert í það.......

Einar Bragi Bragason., 26.8.2008 kl. 11:58

2 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ekkert með sjúkarflug að gera. 

Ef þyrlur væru í fjórðungunum, væri ekki flogið með fastvængjuðu flugi með sjúklinga, líttu á hvernig þetta er erlendis.

Sjúkrahúsin eru EKKI við flugvelli, heldur eru lendingastaðir á þökum eða lóðum húsanna.

Framtið barna okkar er bertur borgið með Háskólatorgi þar sem flugvallarómyndin er.

Miðb´jaríhaldið

einkaflugmaður (að vísiu ekki með gilt skírteini)

og fyrrum dreifbýlistútta

Bjarni Kjartansson, 26.8.2008 kl. 13:52

3 identicon

Íslendingar eru 300.000 í landi sem er stærra en mörg Evrópulönd sem við berum okkur saman við. Hér höfum við aðeins eitt aðalsjúkrahús sem getur tekið við öllum neyðartilfellum. Samanburður á sjúkraflugi við þéttbýlli lönd missir því marks og er heimskulegur. Heimska flugvallarandstæðinga birtist aldrei betur en þegar þeir segja að sjúkraflugið geti bara notast við þyrlur og lent á litlum pöllum við sjúkrahús, jafnvel á þökum þeirra! Það er bara ekki þannig, þyrlur eru ágætar til síns brúks en fara hægt yfir og eru ekki langdrægar. Þegar sekúndur skipta máli þá notum við ekki þyrlur ef hægt er að komast hjá því. Svo má lítið vera að veðurskilyrðum til þess að takmarka verulega möguleika þyrla á lenda í þrengslum, hvað þá á þökum húsa. Það er til eitthvað sem heita séríslenskar aðstæður sem menn mega ekki gleyma þó að þeim langi alveg ofboðslega til að vera heimsborgarar.

Bjarki (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 14:53

4 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Borgarbúar hafa ekki kosið um það Guðjón ha ha ha ......þvert á móti....allflestar kannanir og jafnvel á síðum hjá andstæðingum flugvallarins sýna annað.....Bjarki svarar heimskulegri athugasemd Bjarna vel...

Halló Guðjón eiga þeir sem vinna við þetta ekki að hafa úrslitavald ...það finnst mér ....þeir þekkja þetta mál best.....ef að þeir hefðu sagt að flugvöllurinn væri best geymdur annarsstaðar..........mundi ég halda kjafti....en svo er ekki.

Einar Bragi Bragason., 26.8.2008 kl. 15:38

5 identicon

Hér er fjör sem stundum áður, en ég er alveg sammála þér í þessu máli Einar B.

Ps. Hvernig gengur með eyðieyjulistann.

Bubbi J. (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 17:38

6 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Sælir.

Þú ert semsagt sammála skagfirskum VG í málefnum Reykvíkinga?

Og kannski  Hornfirskum Frömmurum í málefnum Akraness?

Nei, en málið er að VG í Reykjavík hefur ekki þessa skoðun á flugvallarmálinu.

Jón Halldór Guðmundsson, 26.8.2008 kl. 23:28

7 Smámynd: Steingrímur Helgason

Mér er sagt að báðir meðlimir 'winzdri verri grænni' í 'skaffóskíri' standi saman sem ein kona að þezzari ágætiz ályktun.

Steingrímur Helgason, 26.8.2008 kl. 23:54

8 identicon

Gott framlag hjá þér Einar Bragi.

Svo á Reykjavíkurborg ekki einusinni landið undir flugvellinum.  Ég held að Ríkið eigi það allt, eða næstum allt.

Fyrir nú utan það að  best væri að byggja þessi hús sem fólk vill endilega að rísi bara á landfyllingunni undan Ægissíðunni, sem myndi þá bara færast utar og kannski út á Löngusker.  

Annars sýnist mér nú nóg byggt nú þegar, 3000 íbúðir tómar á svæðinu. 

Og að "Færa" flugvöllinn annað hljómar í mínum eyrum eins og að láta sér detta í hug að "Færa" Esjuna austur í Flóa. Þar væri nóg pláss fyrir hana.

Fáránlegt.

Ólafur Vignir Sigurðsson (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 11:28

9 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Ólafur þú ert flottur........Jón það kemur málinu ekkert við ;)...ég vil bara hafa flugvöllinn í friði.

Einar Bragi Bragason., 27.8.2008 kl. 19:37

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Einar minn, þú sem vilt hafa þessa steinsteypuflatneskju sem flugvöllur nefnist í friði, verður einmitt að átta þig á, að þar stendur hnífurinn einmitt í kúnni, hann er EKKI FRIÐAÐUR sem forngripur væri og þess vegna má og á mín vegna að færa hann!Svo var víst kosið um völlin, þú ert greinilega búin að gleyma því.

Magnús Geir Guðmundsson, 28.8.2008 kl. 00:51

11 identicon

Ef flugvöllurinn verður færður deyr innanlandsflug, þá er ég hræddur um að ansi margir missi vinnuna því miður

Res (IP-tala skráð) 29.8.2008 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Bragi Bragason

Höfundur

Einar Bragi Bragason.
Einar Bragi Bragason.

Hef verið atvinnuhljóðfæraleikari í 100 ár(aðeins ýkt) og er skólastjóri Tónlistarskóla Seyðisfjarðar.

Netf.saxi@centrum.is sími 8974265

Tónlistarspilari

- like pantomime EBB master

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Áramót
  • ...927_6924913
  • picture 4 975462.png
  • picture 4 926643.png
  • ...posturrr

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 222129

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband